Sælar stúlkur

Ég er að pakka inn jólagjöfum og horfi á White Christmas og mér varð hugsað til ykkar, sérstaklega próflestrarhestanna okkar - sendi ykkur hlýja strauma - og auðvitað ykkar hinna harðduglegu útivinnandi kvenna.
Ég hlakka mikið til jólahittingsins okkar og er búin að velta því fyrir mér hvað ég á að gera, ég verð búin að pakka inn öllum gjöfum, gæti kannski pakkað Herra Halls gjöf inn, þá hefur hann ekki hugmynd um það hvaða gjöf hann fær, held samt að hann hafi almennt ekki hugmynd um það - ég kann ekki að forrita - væri annars löngu búin að forrita hann aðeins (ekki segja neinum). Mér datt hins vegar í hug að gera konfekt á meðan þið hamsit við að pakka inn eða jafnvel að gefa ykkur duglegu vinkonum mínum herðanudd, ætli ég endi ekki bara á því að sitja og glápa á ykkur, klórandi mér í hausnum og að reyna að fylgjast með samræðunum.
Ég er búin að vera ofsalega dugleg að baka og búa til konfekt þennan mánuðinn - og hann er ekki einu sinni hálfnaður - enda er ég líka búin að halda tvö aðventukaffi, gríðarlegt success hjá mér, enda eru þau það alltaf! Ég var búin að segja Silviu og Þóreyju frá jólakossunum sem ég bakaði og þar sem ég er sannur marzipan unnandi ætla ég að deila uppskriftinni með ykkur - ef svo hræðilega vill til að þið hentuð eintakinu af Fréttablaðinu 22. nóvember sl.
Jólakossar
500 gr. hreint marzipan
300 gr. sykur
1 dl. vatn
150 gr. eggjahvítur
250 gr. dökkt súkkulaði
Marzipanbotn: Ein rúlla marzipan er skorin í ca. 30 sneiðar, sem lagðar eru á bökunarpappír og bakaðar við 180°C í 5-8 mínútur. Mér fannst þetta frekar stórt, þannig að ég legg til að skera hverja sneið í 4 bita, þá er hver koss eins og einn munnbiti.
Fylling: 300 gr. sykur og 1 dl. vatn er soðið saman í 2 mínútur. 150 gr. eggjahvítur eru þeyttar létt og sykurleginum bætt saman við (eitthvað sem Ragnheiður kann mjög vel).
Þeytt með handþeytara við meðalhraða þar til stíft (notaði Kitchen aid, til hvers að nota handþeytara þegar maður á svoleiðis græju). Fyllingunni er sprautað í gegnum plastpoka á marzipanbotnana og síðan bakað í 5 mínútur við 180°C eða þar til yfirborðið er stíft.
Eftir kælingu eru jólakossarnir penslaðir með bræddu súkkulaði - ég dýfði þeim bara ofan í bráðið súkkulaði

Jæja, nú hef ég vonandi stytt ykkur stundir við lærdóm og vinnu, ég þarf að fara að athuga hangikjötslyktina hérna inni - er ekki alveg viss hvort þetta er brunalykt af brenndu kerti eða kjöti...
Sjáumst eftir nokkra daga
Særún - hlakka til að sjá hver er fyrst að kommenta, veðja á Rut í þetta skiptið
